Gunnar Kristjánsson, sóknarprestur á Reynivöllum:
Það skiptir máli að við mótumst til mannúðar í bernsku okkar og æsku,
- að við mótumst til að vera þátttakendur í baráttu þeirra, sem eiga á brattann að sækja,
- að við mótumst til að standa með þeim sem verða fyrir einelti í stað þess að leggja aðra í einelti,
- að við mótumst til þess að láta okkur þykja vænt um fólk í stað þess að líta á aðra sem óvini okkar,
- að við lærum að vera frjáls í stað þess að ánetjast því sem vont er og gæti fjötrað okkur þeim fjötrum sem við losnum kannski aldrei úr.
Mótun til mannúðar, það er gott leiðarhnoð í uppeldinu.