Aðventa og jól eru tími freistinga í mat og hreyfingu. Allskyns góðgæti freistar reglulega á aðventunni og við viljum gjarnan njóta góðs matar með góðri samvisku. Í aðdraganda jóla mæðumst við líka í mörgu og mörgum reynist erfitt að taka tíma í reglulega hreyfingu.
Gaui þjálfari hjá Kettlebells.is deildi fimm ráðum með vinum sínum á Facebook til að komast í gegnum jólavertíðina í jafngóðu eða betra formi. Þetta byggir á 40 daga áskoruninni sem ég fór í gegnum með þeim. Ráðin fimm eru:
- Farðu í klukkutíma göngutúr á hverjum degi fram að áramótum. Sama hvernig veður er.
- Andaðu með nefinu til að vinna gegn streitunni sem fylgir aðventu og jólum. „Með því að anda inn um nefið, ofan í þindina, heldur maður ró sinni. Þetta er gömul, en því miður mikið til gleymd, viska. Það er erfitt að vera stressaður ef maður andar rólega á þennan hátt.“
- Fylgdu áætlun dagana sem þú ferð í jólahlaðborð: a. Borðaðu létt yfir daginn, b. puðaðu vel í 30 mínútur 2-3 klukkutímum fyrir veisluna, c. slepptu brauði og súpu á hlaðborðinu en fáðu þér gott kjöt og góðan fisk og gott meðlæti, d. borðaðu hægt og njóttu matarins.
- Labbaðu í kjörbúðina og haltu á pokunum heim. Það er góð æfing. Passaðu þig að vera bein/n í baki og horfa fram á veginn.
- Taktu Nelson Mandela þér til fyrirmyndar: „ Finndu það góða í fólki, ekki tala illa um aðra, fyrirgefðu þeim sem hafa gert þér illt, hlustaðu meir en þú talar, vertu góð fyrirmynd, hugsaðu vel um eigin heilsu, trúðu á réttlæti, aldrei gefast upp og hafðu gaman af lífinu.“
Fimm einföld ráð sem gera hæfilega miklar kröfur til okkar og auka lífsgæðin. Gaui útskýrir hvert skref nánar á Facebook. Kíkið á það og njótið aðventunnar og jólanna.
Leave a Reply