Það er gott að hreyfa sig á hverjum degi. Best er að flétta hreyfinguna inn í okkar daglega lífsstíl, til dæmis með því að ganga frekar en að keyra stuttar vegalengdir, hjóla í vinnuna, fara stiga frekar en að taka lyftu. Þið hafið lesið þetta allt.
Á heilsubloggi á vef New York Times er kynnt sjö mínútna æfingarútina sem kemur hjartanu af stað. Þú þarft ekkert nema svolítið pláss og einn stól. Hverja æfingu gerir þú í 30 sekúndur og á milli æfinga hvílir þú í 10 sekúndur.
- Sprellikarlar
- Sitja upp við vegg með hnén í 90 gráðu horni
- Armbeygjur
- Uppsetur
- Uppstig á stól
- Hnébeygjur
- Dýfur a stól
- Planki
- Hlaupa á staðnum með háum hnélyftum
- Framstig
- Armbeygja með snúningi
- Hliðarplanki
Æfingarnar 12 ættu að taka rúmlega sjö mínútur. Þær má endurtaka tvisvar eða þrisvar. Ítarlegri lýsingu á æfingunum má lesa í fræðigreininni sem bloggfærslan er byggð á.
Á fertugasta og fjórða gleðidegi skulum við hreyfa okkur!
Myndin með bloggfærslunni er af Tómasi Viktori að stökkva út í sundlaug. Sund er einmitt frábær líkamsrækt.
Leave a Reply