6h.is er hollráðavefur fyrir foreldra, unglinga og börn. Þar segir um samskipti foreldra og barna:
Gefum okkur tíma til að ræða við börn okkar á hverjum degi. Í samræðum foreldra og barna er mikilvægt að tala af einlægni, skiptast á skoðunum, lýsa tilfinningum sínum, virða sjónarmið hvert annars og byggja upp gagnkvæmt traust.
Mikilvægt er að barnið finni að hlustað er á það. Þegar fjölskyldan hefur vanið sig á góð og uppbyggileg samskipti er auðveldara að ræða ágreiningsmál þegar þau koma upp innan sem utan fjölskyldunnar.
Í samræðum foreldra og barna, þar sem leiðarljósið er að hlusta á barnið deila skoðunum sínum og tilfinningum, eru foreldrarnir í raun að aðstoða börn sín við að verða ábyrg gerða sinna.
Þetta gildir líka fyrir fullorðna.
Og mætti leggja til grundvallar í samtalinu um mörg deilumál í samtímanum.
Með góðum árangri.
Leave a Reply