Árni og Kristín:
Hluti af því að geta haldið áfram, er að gera upp við sína eigin sögu og horfast í augu við það sem hefur valdið öðrum og okkur sjálfum skaða. Í sögu Evrópu er mikið um ofbeldi og ofsóknir sem tengjast trú og trúarbrögðum.
Í iðrunarmessu á heimsþingi Lútherska heimssambandsins í Stuttgart heyrðum við sögur af ofsóknum á hendur endurskírendum og Mennonítum, upplifðum sársaukann með þeim sem þjáðust og fundum sorg yfir ranglæti og misnotkun sem okkar eigin trú hefur ýtt undir.
Við stigum skref í átt að samfélagi sem þorir að biðja um fyrirgefningu og þorir að fyrirgefa.
Leave a Reply