Tilhugsunin um heimsendi vekur ólíkar kenndir og hvetur til ólíkra viðbragða. Marteinn Lúther á að hafa sagt í þessu samhengi:
Þótt ég væri viss um að heimurinn endaði á morgun, myndi ég samt gróðursetja eplatréð mitt.
Spekin í þessum orðum er að við eigum ekki að lifa hvern dag eins og hann væri sá síðasti – heldur miklu fremur eins og hann væri sá fyrsti.
Byrjum á einhverjum nýju, gróðursetjum, hlúum að, gerum áætlanir, vonum og hlökkum til. Lífið rennur áfram, líka í erfiðustu aðstæðunum, þegar okkur finnst að öllu sem við þekkjum sé lokið.
Það er verðugt verkefni á gleðidögum.
Myndin er af eplatré í blóma. Ljósmyndarinn heitir Harry Popoff.
Leave a Reply