Við eigum tveggja ára brúðkaupsafmæli í dag sem samkvæmt hefðinni heitir bómullarbrúðkaup. Brúðkaupsafmælisdagarnir eru sérstakir tyllidagar í árinu og við gerum okkur dagamun með ýmsum hætti. Það er reyndar sérlega gaman að eiga brúðkaupsafmæli á gleðidögum því þá daga er tvöfalt fagnaðarefni.
Á fertugasta og sjötta gleðidegi erum við þakklát fyrir hvort annað, börnin okkar og fjölskyldur, fyrir dagana og lífið sem við eigum saman – fyrir ástina.
Mynd: Leo Reynolds
Leave a Reply