„Með eigin augum sáuð þið öll hin miklu máttarverk sem Drottinn vann“ segir í heilagri ritningu (5Mós 11.7).
Kvikmyndir eru vettvangur fyrir lífsreynslu og stóru spurningarnar í lífinu. Á kyrrðardögum með kvikmyndum notum við hinn sjónræna miðil kvikmyndarinnar til að næra íhugun og andlega uppbyggingu. Kvikmyndirnar sem við horfum á saman eru valdar með þetta í huga. Hver sýning er römmuð inn af stuttri innlýsingu og íhugun sem beina athyglinni að trúar- og lífsbaráttu kvikmyndar og okkar eigin lífs.
Kyrrðardagar með kvikmyndum verða haldnir í Skálholti 14.-16. október 2011. Þeir eru bornir uppi af sömu atriðum og venjulegir kyrrðardagar. Þögnin og friður frá áreiti daglegs lífs leiðir huga og sál að lífsreynslunni og tilfinningunum sem við berum með okkur. Kyrrðardagar með kvikmyndum eru nýjung í kyrrðardagastarfi Skálholts.
Þeir eru haldnir í samvinnu við Biskupsstofu, Kjalarnessprófastsdæmi og rannsóknarhópinn Deus ex Cinema.
Umsjónarmenn eru séra Árni Svanur Daníelsson og séra Kristín Þórunn Tómasdóttir.
Dagskrá kyrrðardaga með kvikmyndum
Föstudagur 14. október
18.00 Kvöldsöngur í kirkjunni (vesper)
18.30 Kvöldverður og kynning dagskrár (þögnin hefst)
20.00 Kvikmyndasýning I með innlýsingu og íhugun
Laugardagur 15. október
08.00 Vakið, morgunverður
09.00 Morgunsöngur (laudes)
09.30 Kvikmyndasýning II með innlýsingu
12.00 Hádegisverður
13.30 Kvikmyndasýning III með innlýsingu
15.30 Kaffi
16.00 Kvikmyndasýning III (frh)
18.00 Kvöldsöngur (vesper)
18.30 Kvöldverður
20.00 Kvikmyndasýning IV með innlýsingu
Sunnudagur 16. október
08.00 Vakið
09.00 Morgunverður.
09.30 Kvikmyndasýning V með innlýsingu
11.00 Messa í Skálholtskirkju
12.00 Hádegisverður – þögnin rofin
13.30 Umræður og kveðjustund
Allir dagskrárliðir á kyrrðardögum eru tilboð og ekki skylda. Stundir milli dagskrárliða má nota til íhugunar, hvíldar og útivistar. Samtöl við prest eru líka í boði.
Leave a Reply