Hvað heita kertin á aðventukransinum er spurning sem kemur oft upp á aðventunni. Þegar við rifjum það upp er gott að hafa í huga að kertin koma fyrir í tímaröð. Þannig vísa þau til sögunnar.
- Spádómskertið er fyrst, það vísar til spádómanna um fæðingu Jesú (t.d. Jes 9.5).
- Betlehemskertið er annað, það sem vísar til staðarins þar sem Jesús fæddist (sbr. Lúk 2.4).
- Hirðakertið er þriðja, það vísar til hirðanna í haganum (sbr. Lúk 2.8).
- Englakertið er fjórða, sem vísar til englanna sem sungu fyrir hirðana (sbr. Lúk 2.9-14).
Þannig munið þið þetta.
#ósíuðaðventa
Myndin hér að ofan sýnir aðventukrans þar sem kveikt hefur verið á Spádómskertinu. Myndina tók Micha L. Rieser.