Ég var lesandi vikunnar í Morgunglugganum á Rás 1 í gær. Sagði þar frá sex bókum sem ég er að lesa þessa dagana:
- Original Strength: Regaining The Body You Were Meant To Have eftir Tim Anderson og Geoff Neupert
Frábær bók um gildi þess að hreyfa sig eins og börn, alla ævi. - 100 Favourite Places eftir Slow Travel Berlin
Eitt hundrað skemmtilegir staðir í uppáhaldsborginni okkar hjónanna. Við mælum með bók og borg! - Fortunately the Milk eftir Neil Gaiman
Ævintýri í hversdagslífinu eftir uppáhaldshöfund. - The Target eftir David Baldacci
Reyfari eins og þeir gerast bestir, gott og illt í svarthvítri framsetningu, með gráskölum samt. - The Rules: The Way of the Cycling Disciple eftir The Velominati
Hjólareglur, hraði og spandex. - Sálmar 2013
Hundrað sextíu og tveir nýir sálmar til að lesa og syngja.
Leave a Reply