Dagurinn eftir kjördag er dagur sigra og sigurvegara. Á Íslandi er sú meginregla í pólitík að allir vinna. Hver sigrar að vísu með sínum hætti, en á endanum vinna allir. Þegar atkvæði úr öllum kjördæmum hafa verið talin liggur fyrir að sex flokkar eru á leið á þing.
- Björt framtíð býður fram í fyrsta sinn og nær ágætu fylgi. Það er sigur.
- Framsóknarflokkur bætir við sig tíu þingmönnum og nær einu besta kjöri í sögunni. Það er sigur.
- Píratar komast á þjóðþing, fyrstir allra pírataflokka í heiminum. Það er sigur.
- Samfylkingin tapaði fylgi og þingmönnum en stendur keik með sínum málefnum og gildum jafnaðarmennskunnar. Það er sigur.
- Sjálfstæðisflokkur bætir við sig tveimur þingmönnum og fékk flest atkvæði í kosningunum. Það er sigur.
- Vinstrihreyfingin grænt framboð tapar fylgi frá síðustu kosningum en jók fylgið á lokasprettinum. Það er sigur.
Allir vinna. Líka þeir sem töpuðu. Er það ekki björt sýn á tuttugasta og níunda gleðidegi?
Ps. Þetta breytir auðvitað engu um það að sumir flokkar þurfa að ganga í sig og hefja uppbyggingarstarf, en samt 😉
Leave a Reply