Toshiki Toma skrifar stuttan pistil á Smuguna í dag. Hann segir þar meðal annars að:
- Við þurfum að hlusta á þolendur kynþáttafordóma og taka mark á upplifun þeirra.
- Við eigum að forðast að nota órökstuddar alhæfingar í umræðunni.
- Við eigum að fræða markvisst um fordóma.
Toshiki hefur starfað sem prestur innflytjenda um árabil. Hann er sjálfur innflytjandi og hefur því reynt þetta á eigin skinni. Hann hefur skarpa innsýn í þessi mál og er öflugur talsmaður innflytjenda á Íslandi.
Við tökum undir með honum viljum gera lokaorð hans að okkar: Baráttan gegn kynþáttafordómum er sameiginlegt verkefni Íslendinga og innflytjenda.
Leave a Reply