Elínborg Sturludóttir Snæfellingur er fjórtándi vonarberinn í jóladagatali kirkjunnar. Hún dregur upp mynd af von sem ber okkur að landi þegar öll sund virðast lokuð.
Blogg
Færslur um hvaðeina sem okkur þykir áhugavert. Notaðu hnappana til að sía eða flettu gegnum allt.
-
Hrúgur af skít og vonin um folaldið
Jón Gnarr borgarstjóri er þrettándi vonarberinn í jóladagatali kirkjunnar. Hann segir að lífið sé allt of sjaldan auðvelt og einfalt en að vonin sé sérstaklega dýrmæt í erfiðleikum. Vonin um að kannski leynist lítið folald inn í skítahrúgunni sem virðist óendanleg, gefur kraft til að halda áfram að moka sig í gegn.
-
Vonin um jafnrétti allra
Sigurlín Margrét er tólfti vonarberinn í jóladagatali kirkjunnar. Hún talar við okkur á táknmáli um vonina að hvert einasta nýfætt barn muni njóta virðingar, jafnréttis og skilnings.
-
Úr viðjum vanans
Harpa Arnardóttir leikari er ellefti vonarberinn í jóladagatali kirkjunnar. Hún segir sögu um hvernig bein reynsla kennir okkur um vonina og að viðjar vanans eru ekki órjúfanlegar.
-
Ný sýn og nýtt upphaf
Þórhallur Heimisson er tíundi vonarberinn í jóladagatali kirkjunnar. Hann talar um hvernig erfiðleikar geta falið í sér nýja sýn og nýtt upphaf.
-
Þú ert með fallegt hjarta
Magga Pála er vonarberi dagsins. Hún minnir okkur á að það er eitthvað gott í lífinu þrátt fyrir allt sem gerist inn á milli.
Við hittum hana í einum Hjallastefnuskólanum. Myndbandið var tekið upp fyrir framan vegg sem var skreyttur með teikningum og yrðingum barnanna. Á einu blaðinu stendur: „Þú ert með fallegt hjarta“ og svo hefur verið teiknað fallegt hjarta við hliðina. Skólinn var reyndar fullur af svona hrósmiðum.
Það vekur von.
-
Hugmyndin um annan heim
Árni Bergmann rithöfundur er áttundi vonarberinn í jóladagatali kirkjunnar. Hann nálgast vonina sem möguleikann á þeirri hugsun að heimurinn gæti verið öðruvísi en hann er.
-
Von er vatn – vatn er von
Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir prófessor og stjórnlagaþingkona er sjöundi vonarberinn í jóladagatali kirkjunnar. Hún lýsir voninni eins og vatni sem er hverju lífi nauðsynlegt.
-
Að taka á móti von
Toshiki Toma er sjötti vonarberinn í jóladagatali kirkjunnar. Hann minnir okkur á táknið sem felst í jólunum og að við þurfum að taka sjálf á móti voninni sem felst í þeim.
-
Sunnudagsviðtal um von
Samhliða jóladagatali kirkjunnar birtast fjögur sunnudagsviðtöl þar sem rætt er um von í lengra máli. Dr. Gunnar Kristjánsson, prófastur, er fyrsti viðmælandinn. Hann talar hér um muninn á von og bjartsýni, um mikilvægi vonarinnar í lífi manneskjunnar og hlutverk vonarinnar í Biblíunni.