Árni og Kristín

Blogg

Færslur um hvaðeina sem okkur þykir áhugavert. Notaðu hnappana til að sía eða flettu gegnum allt.

  • Mikilvægasta B-vítamínið

    Það eru mikil gæði að fá að taka B-vítamínið sitt reglulega.

    “B-vítamín eru lífsnauðsynleg og skortur á þeim getur haft slæmar afleiðingar fyrir líf og heilsu manna,” segir í frjálsa alfræðiritinu.

    Biblían er B-vítamín sem okkur eru gefin til að íhuga, njóta og læra af – bráðnauðsynleg fyrir líkama, sál og anda. Biblían er risa-fyrirbæri í menningunni og við getum nálgast hana út frá ólíkum sjónarhólum bókmennta, vistfræði, sagnfræði, heimspeki, tungumála, þýðinga, siðfræði, áhrifasögu, kynjafræði eða stjórnmála, svo eitthvað sé nefnt. Þarna er af nógu að taka.

    Fyrir mér er Biblían ekki síst gjöf sem okkur er gefin til að kynnast verkum Guðs í veröldinni. Biblían er þungamiðjan í kristinni trú og í lífi þeirra sem vilja láta orð Guðs móta og leiða.

    Sem prestur er ég alltaf að vinna með Biblíuna. Og ég sé hvað hún er mikið vítamín í lífi fólks. Við notum Biblíuna á ólíkan og skapandi hátt. Hér eru nokkrar leiðir til að taka upp B-vítamínið besta.

    Látum ekki B-vítamínskortinn hrjá okkur og ryðjum úr vegi því sem kemur í veg fyrir upptöku alls þess góða og skapandi sem þar er að finna.

    • Við fylgjum lestrarröðum og kíkjum á einstök ritningarvers á hverjum degi. Hér er gott að nota t.d. Lykilorð, sem koma út á hverju ári, og lestraskrá Biblíufélagsins.
    • Við nýtum okkur frábært aðgengi að mannakornum á heimasíðu Biblíufélagsins (biblian.is) og fáum daglega biblíulestur í tölvupósti.
    • Við nýtum okkur leiðir eins og lectio divina, þar sem við lesum í bæn og íhugun.
    • Við hittumst í bænahópum og leshópum – (líka á netinu!) – og íhugum sameiginlega.
    • Við hvílum í biblíulestraröðinni sem helgihaldið okkar byggist á í messum þjóðkirkjunnar og fylgir kirkjuárinu.

    Samhengi biblíutextanna

    Snilldin við að hvíla í kirkjuárslestrunum er sú að þar fáum við ákeðið samhengi fyrir texta Biblíunnar. Stóra samhengið er auðvitað að hér komum við saman sem söfnuður, í kringum orð Guðs.

    Annað samhengi er að í guðsþjónustunni stendur enginn texti einn – við fáum að heyra texta úr Gamla testamentinu, úr bréfum Nýja testamentisins og úr einu guðspjallanna. Þessir þrír textar mynda túlkunarramma og opna á splúnkunýjar víddir þegar við veltum fyrir okkur boðskap Biblíunnar hér og nú.

    Það eru mikil gæði í því að taka B-vítamínið sitt reglulega. Það nærir og viðheldur.

    Í frjálsa alfræðiritinu kemur þetta líka fram: „Ástæður fyrir því að upptaka B-vítamíns sé ekki fullnægjandi í líkamanum geta verið nokkrar.”

    Við þekkjum alveg það sem stendur í vegi fyrir því að við tökum inn B-vítamínið besta. Það geta verið fordómar, sinnuleysi, streita – og bara leti (þekki þetta sjálf). En þegar við náum að stilla okkur inn á að þiggja það sem Biblían hefur upp á að bjóða opnast fjársjóður sem gerir okkur sterkari, rólegri, gagnrýnni á allt ruglið sem viðgengst í kringum okkur.

    Látum ekki B-vítamínskortinn hrjá okkur og ryðjum úr vegi því sem kemur í veg fyrir upptöku alls þess góða og skapandi sem þar er að finna.

    Kristín Þórunn Tómasdóttir er dómkirkjuprestur í Skálholti. Fyrst birt í B+, blaði Biblíufélagsins, 5. febrúar 2026.

  • Hreintrúin og jólin

    Þegar hreintrúin stal jólunum í Kirkjublaðinu, saga af tímabili “í sögunni þegar sótt var að jólunum og jólahaldi úr því sem má kalla óvæntri átt, þ.e. af þeim sem tóku kristna trú sína svo alvarlega að ekki var pláss fyrir jólin í þeirra heimsmynd. Jólunum var því slaufað og því fylgt eftir harðri hendi.”

  • Bæn um frið á erfiðum tímum

    Guð réttlætis, friðar og sátta.

    Á tímamótum nýrra átaka í Mið-Austurlöndum, komum við fram fyrir þig, með brostin hjörtu vegna þjáningar, dauða og ranglætis sem hafa dunið yfir íbúa Landsins helga. 

    Öll erum við ein fjölskylda en upplifum samt daglega hvað samskipti okkar eru brotin. 

    Miskunnsami Guð, við biðjum að þú umbreytir hjörtum og huga, setjir virðingu fyrir öðrum í stað fjandskapar, og að ótti víki fyrir náungakærleika.

    Við biðjum fyrir friði í Landinu helga og Mið-Austurlöndum og að stríð og ofbeldi taki enda. 

    Endurnýja von okkar, ó Guð.

    Við biðjum um lausn gísla í haldi, við biðjum um vernd yfir saklausum, um að mannréttindi séu virt, að hjálparliðar njóti verndar.

    Gef leiðtogum visku og hugrekki til að velja frið framyfir stríð.

    Megi réttlæti umvefja íbúa Palestínu. 

    Opna framtíðarleiðir fyrir börn Ísraels og Palestínu að lifa saman í öryggi og friði. 

    Miksunnsami Guð, gef okkur frið inn í stríðandi aðstæður, til svæða sem upplifa átök og stríð:

    Í Úkraínu, Súdan, Myanmar og svo mörgum öðrum löndum.

    Gef okkur umbreytandi frið sem fær að ríkja, gef að þjóðir og samfélög sættist og fái lifað saman lífi í fulli gnægð, eins og þú hefur fyrirbúið þeim öllum.

    Amen. 

    Þessi bæn kemur frá Lútherska heimssambandinu, Kristín þýddi hana á íslensku.

  • Ferðalagið

    Í dag sendi Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna, sem í daglegu tali er kölluð UNHCR, frá sér stuttmyndina The Journey. Hún sýnir á rúmri mínútu ferðalag flóttafólks, frá heimilinu sínu, í flóttamannabúðir, á Ólympíuleikana. Tilgangurinn er að vekja athygli á Team Refugees sem er lið Flóttamannahjálparinnar á komandi Ólympíuleikum.

    The Journey er stuttmynd um ferðalag fólks á flótta.

    Þetta er grípandi mynd.

    Ein þeirra sem nú undirbýr sig er Rose Lokonyen frá Suður Súdan. Hún er hlaupakona sem þurfti að yfirgefa heimalandið. Hennar heimili er nú í Kakuma flóttamannabúðunum í Kenya og þar starfaði hún meðal annars fyrir Lútherska heimssambandið.

  • Gleðidagur 24: Sumarþrumur

    Þegar við vorum lítil og lásum norrænu goðafræðina okkar fór mikið fyrir þrumuguðinum Þór. Sögurnar af honum eru krassandi. Eitt var þó snúið að skilja: þrumurnar sem Þór er kenndur við.

    Í Genf er þessu öfugt farið. Þar þekkja fáir þrumuguðinn og sögurnar norrænu, en þrumur og eldingar þekkja allir. Þrumuveðrið er fastur hluti af sumarupplifuninni á meginlandinu. Drunur í fjarska, sjónarspil á himni og hellidemban sem vætir jörð og fólk.

    Á tuttugasta og fjórða gleðidegi þökkum við fyrir náttúruna sem minnir á sig og sögurnar sem mannfólkið hefur sagt hvort öðru til að skýra og skilja.

  • Gleðidagur 23: Fjórði maí

    Fjórði maí er kær aðdáendum Stjörnustríðs. Í dag viljum við þakka fyrir stórsögurnar á hvíta tjaldinu. Þær hafa verið ungum og öldnum innblástur um baráttu góðs og ills, hetjur og andhetjur. Þær eru endalaus uppspretta fyrir samtöl og vangaveltur.

  • Gleðidagur 22: Heimavistarmatur

    Í heimavistinni er ástæða til að borða hollan mat. En stundum langar okkur í eitthvað annað. Eitthvað óhollt sem lyftir hug í hæðir og skapar vellíðan. Til dæmis samloku með hnetusmjöri og sultu. Hér er uppskrift.

    Hvað finnst þér gott að borða í heimavist?

  • Gleðidagur 21: Grænt

    Morgunstund gefur gull í mund segir máltækið. Hún gefur líka tækifæri til að upplifa morgunfegurðina þegar sólin rís.

    Þessar myndir voru teknar í morgun á göngutúr um nágrennið.

  • Gleðidagur 20: Peppaða prinsessan Poppy

    Bíómyndin um Tröllin er í miklu uppáhaldi hjá okkur. Peppaða prinsessan Poppy er skemmtileg kemst langt með jákvæðu viðhorfi til lífsins. Það sýnir meðfylgjandi myndbrot vel. Á tuttugasta gleðidegi þökkum við fyrir jákvæða fólkið í lífinu.

  • Gleðidagur 19: Frá sannleika til umhyggju

    Í heimavistinni eigum við meiri samskipti á netinu en áður. Á nítjánda gleðidegi langar okkur að deila með ykkur þremur spurningum sem allir ættu að spyrja sig áður en skrifað er á netið:

    1. Er þetta satt?
    2. Er þetta nauðsynlegt?
    3. Sýnir þetta umhyggju?

    Eins og Páll skrifaði: “Allt er leyfilegt en ekki er allt gagnlegt. Allt er leyfilegt en ekki byggir allt upp.” (1Kor 10:23)