Blogg
Færslur um hvaðeina sem okkur þykir áhugavert. Notaðu hnappana til að sía eða flettu gegnum allt.
-
[youtube http://www.youtube.com/watch?v=zTV7-yIycms?wmode=transparent&autohide=1&egm=0&hd=1&iv_load_policy=3&modestbranding=1&rel=0&showinfo=0&showsearch=0&w=500&h=281]
Rowan Williams New Years Message 2012:
Being grown-up doesn’t mean forgetting about the young. And a good New Year’s Resolution might be to think what you can do locally to support facilities for young people, to support opportunities for counselling and learning and enjoyment in a safe environment. And above all, perhaps we should just be asking how we make friends with our younger fellow citizens — for the sake of our happiness as well as theirs. A very happy and blessed New Year to you all.
(Source: http://www.youtube.com/) -
Hlæja eða gráta?
Strákarnir í Baggalút hittu sannarlega naglann á höfuðið í áramótalaginu sínu um Skaupið:
Veit ekki hvort á að hlæja eða gráta, en kreisti fram tár.
Það var einmitt líðanin þegar horft var á lokalagið í gær. Takk fyrir beitta gagnrýni Gunnar Björn og félagar.
Ps. Lára Hanna stendur YouTube vaktina fyrir hönd Rúv. Takk fyrir það.
-
Nýárskveðja
Áramótaþáttur Hljómskálans var frábær. Þremenningarnir Bragi Valdimar, Guðmundur Kristinn og Sigtryggur fá hrós fyrir sitt framlag til besta sjónvarpsþáttar ársins 2011. Við væntum mikils af þeim á nýju ári.
Með Nýársmorgni Braga Valdimars, sem Sigurður Guðmundsson syngur, sendum við öllum lesendum þessa bloggs allra bestu nýárskveðjur með þökk fyrir allt gamalt og gott. Guð blessi ykkur nýja árið og gefi góða daga.
2012 verður frábært ár.
-
-
In the garden.
-
Eru konur kjánar?
Í Morgunblaðinu í dag er birtur pistillinn Kjánahrollur ársins. Þar er á gamansaman hátt fjallað um ýmsar uppákomur á árinu sem er að líða sem blaðamanni þykja neyðarlegar, hallærislegar og kjánalegar. Meðal þeirra eru:
- Opnun Lindex
- PR-trikk Steinunnar Birnu
- Grjótkastsorð Vigdísar Hauksdóttur
- Ásókn íslenskra stúlkna í þekktan leikara
- VIP-partý og yfirlýsingar Hildar Lífar og Lindu Ýrar
Sjö ljósmyndir eru birtar með umfjölluninni. Á fjórum myndum eru konur í forgrunni og myndin frá opnun Lindex sýnir aðallega konur (og það eru konur á tveimur myndum til viðbótar). Lesandi sem skimar síðuna, les fyrirsögn og skoðar myndir gæti hæglega dregið þá ályktun að konur væru aðalkjánarnir í ár. Konurnar sem vildu gera góð kaup í Lindex toppa listann.
Ágætis tímakaup
Fyrir tveimur dögum vakti Morgunblaðið einnig athygli á verslunarhegðun þeirra sem vilja gera góð kaup en útsala á Apple vörum milli jóla og nýárs rataði á forsíðu blaðsins. Flottur strákur sem hafði lagt mikið á sig til að kaupa sér tölvu gerði góð kaup þennan dag. Hann var tekinn tali og sagt frá tölvukaupunum hans undir fyrirsögninni „Þetta er ágætis tímakaup“. Í fréttinni kom einnig fram að allar útsöluvörurnar seldust upp á innan við klukkustund.
Við vonum að strákurinn sem keypti sér MacBook Pro tölvu fái ekki sömu útreið hjá Morgunblaðinu og fólkið sem vildi kaupa barnaföt á góðu verði í Lindex.
Við spyrjum: Hvers vegna er sniðugt að bíða í biðröð til að kaupa tölvu á góðu verði, en kjánalegt að bíða í biðröð til að kaupa barnaföt á góðu verði?