Sigríður Guðmarsdóttir skrifar um valdeflingu og valddreifingu í kirkjukosningum og íhugar meðal annars hverjir eiga að hafa kosningarétt í kosningum á biskupum og til kirkjuþings og hvernig má kynna biskupskjörið sem er framundan til að auka þátttöku. – Meira um biskupskjör og kirkju.
Blogg
Færslur um hvaðeina sem okkur þykir áhugavert. Notaðu hnappana til að sía eða flettu gegnum allt.
-
Pastor of the future? The future of pastors?
-
Leikirnir í skólastofunni
Ragnar Þór bloggar um Vogaskóla og lesbrettin og segir það tilgangslaust að halda unglingum frá facebook og leikjum í námi. Eftir stendur þá spurningin: Hvernig getum við notað leikina í kennslu?
-
[vimeo 34853044 w=500 h=281]
The Future Belongs to the Curious. Via Stellar.
(Source: http://player.vimeo.com/) -
Ekki bara miklar heldur of miklar
Þrettán prósenta hækkun á gjaldskrá leikskóla um áramótin er of mikið. Hvernig er þessu háttað með aðra þjónustu hjá borginni, hækkar hún jafn mikið?
-
Svellbunkarnir og náunginn
Bergsteinn Sigurðsson skrifar um svellmálið mikla í Fréttablaðið í dag:
„Sýnum fyrirhyggju, varkárni, tillitssemi og samkennd í umsvifum okkar og samneyti við annað fólk næstu daga. Hættum að ætlast til þess að gröfukarl frá borginni bjargi okkur eftir hentugleika. Söndum planið sjálf, skiljum bílinn eftir heima, kaupum mannbrodda, skjótumst út í búð fyrir gömlu hjónin á efri hæðinni.“
Vel mælt. Þetta er líka ágætis innlegg í samtalið um náungasamfélagið, þar þjónustunni við náungann er ekki útvistað.
-
Biskupssöngur
Ef ég væri biskup skrifar Óskar Hafsteinn Óskarsson í Fréttablaðið í dag og bendir meðal annars á að biskupar mega vera ungir og að nýr biskup þarf að hafa öflugt teymi í kringum sig, vera í góðum tengslum og hvetja til gagnrýninnar umræðu um kirkju og kristni. – Meira um biskupskjör og kirkju.
-
Lifrarþjónusta í líkama Krists
Sigríður Guðmarsdóttir í bloggar um kirkjuna sem líkama Krists og veltir fyrir sér hvaða lífffæri biskupinn sé í þessum líkama. Er hann kannski lifurin? – Meira um biskupskjör og kirkju.
-
Religion survives because it answers three questions that every reflective person must ask. Who am I? Why am I here? How then shall I live?
-
Charlie og Charles og Inside Job
Eins og margir Íslendingar horfðum við á Inside Job þegar hún var sýnd á Rúv fyrir tæpri viku síðan. Þetta er mögnuð mynd sem vekur margar spurningar. Í myndbandinu hér að ofan má ræðir bandaríski þáttastjórnandinn Charlie Rose við Charles Ferguson sem er leikstjóri Inside Job.