„Alveg eins og fólkið í súlnagöngunum og pílagrímarnir í Lourdes, þá bíða Vladimir og Estragon eftir því sem þeir trúa að þeir þurfi til að geta lifað. Íslenska þjóðin er líka í þessum sporum – hún bíður og bíður, eftir lausnum, eftir réttlæti, eftir því að geta staðið upp.“ Prédikun dagsins eftir Kristínu er á Trú.is.
Blogg
Færslur um hvaðeina sem okkur þykir áhugavert. Notaðu hnappana til að sía eða flettu gegnum allt.
-
Kristín Á nöfinni
Kristín var Á nöfinni í gær og ræddi um þjóðkirkjuna sem þátttökusamfélag. Fleiri myndir eru á flickr.
-
Samskiptabyltingin og kirkjusamtalið
Samtalið um kirkjuna og trúna og samfélagið okkar stendur yfir á netinu. Á kirkjan.is má nú lesa stutta samantekt frá erindi Árna Á nöfinni í síðustu viku.
-
Uppgjör við yfirborðsmennsku
Melankólía von Triers er uppgjör við yfirborðsmennsku skrifar Michael Larsson, menningarrýnir á kvikmyndablogg sænsku kirkjunnar (á sænsku, tyvärr).
-
Kirkjan og samskiptabyltingin
Ég flutti erindi á málfundi Framtíðarhóps kirkjuþings um daginn. Upptaka með myndum er komin á vefinn.
Í erindinu varpaði ég meðal annars fram þremur tesum sem væri gaman að ræða frekar:
- Söfnuðurinn er grunneining kirkjunnar á netinu.
- Heimilis- og nýkirkjuguðrækni einkennir trúarlíf á netinu.
- Leikir og lærðir tala við sama borð á netinu.
Hvað segið þið?
-
Enska kirkjan tístir
The Twurch of England er nýr vefur um hina tístandi kirkju í Bretlandi. Þarna er líka bloggað um kirkju og samskipti.
-
-
Fyrir 48 árum
Í dag er þess minnst að 48 ár eru liðin frá því Martin Luther King flutti ræðuna um drauminn. Í tilefni af þessu bloggar Mary Hess bloggar um kynþáttahatrið í Bandaríkjunum í dag.
-
Bankarnir og boðorðin
Í Svarthöfðabloggi dagsins er bankakerfið borið saman við kirkjuna á fyrri öldum:
Eitt sinn borguðum við tíund til kirkjunnar, eða tíu prósent af öllu. Nú borgum við tuttugu prósent af öllu í vexti til bankanna. Þau tíðindi eru orðin að bankarnir eru kirkja nútímans og trúarbrögðin eru neysluhyggja.
Að mati Svarthöfða er bankinn ekki bara kirkja heldur líka Guð. Það kemur fram í tíu boðorðum bankans:
Bankinn er Guð nútímans. Hér eru boðorð hans:
1. Ég er lánadrottinninn sem fjármagnaði húsnæðið þitt. Þú skalt ekki aðra banka hafa. Hafir þú ekki nógu marga þjónustuþætti innan bankans þíns borgarðu hærri vexti.
Þetta er áhugavert dæmi um áhrifasögu Gamla testamentisins. Um leið kviknar spurningin hvort Svarthöfði sé að ýja að því að bankakerfið sé fimmta valdið í samfélaginu.
-
Að læra um lífið á lifandi hátt
Sumarnámskeið fermingarbarnanna eru eitt verkefnið sem við komum að í ágúst. Kristín fylgdi unga fólkinu í Hafnarfjarðarkirkju og skrifaði meðal annars pistilinn Að læra um lífið á lifandi hátt á Trú.is.