Tekið á frostdegi. Það býr fegurð í hinu smáa!
Blogg
Færslur um hvaðeina sem okkur þykir áhugavert. Notaðu hnappana til að sía eða flettu gegnum allt.
-
Kallað eftir konum
Arna Grétarsdóttir kallar eftir konum í biskupskjöri og leggur til grundvallar tíu mælikvarða á kandídata. Fjórði er svona: „Að stjórna eða leiða í gegnum þjónustu. Hrósa óspart og gefa þeim heiðurinn sem eiga.“ – Meira um biskupskjör og kirkju.
-
Kallar og konur, skoðanir og verklag
Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar um biskupskjör og jafnrétti og sýnileika. Hann dregur saman nokkur atriði úr umræðunni og kemst að þeirri niðurstöðu að við eigum að kalla eftir skoðunum og verklagi frekar en ákveðnu kyni. – Meira um biskupskjör og kirkju.
-
Skandall í brúðkaupi
Brúðkaup og brjóst, salt, iðnaður og sitthvað fleira var til umræðu í Víðistaðakirkju í morgun. Varstu annars staðar? Ekki hafa áhyggjur því prédikunin er á Trú.is.
-
Hvernig tryggjum við þátttöku?
Sigríður Guðmarsdóttir skrifar um valdeflingu og valddreifingu í kirkjukosningum og íhugar meðal annars hverjir eiga að hafa kosningarétt í kosningum á biskupum og til kirkjuþings og hvernig má kynna biskupskjörið sem er framundan til að auka þátttöku. – Meira um biskupskjör og kirkju.
-
Leikirnir í skólastofunni
Ragnar Þór bloggar um Vogaskóla og lesbrettin og segir það tilgangslaust að halda unglingum frá facebook og leikjum í námi. Eftir stendur þá spurningin: Hvernig getum við notað leikina í kennslu?
-
Ekki bara miklar heldur of miklar
Þrettán prósenta hækkun á gjaldskrá leikskóla um áramótin er of mikið. Hvernig er þessu háttað með aðra þjónustu hjá borginni, hækkar hún jafn mikið?
-
Biskupssöngur
Ef ég væri biskup skrifar Óskar Hafsteinn Óskarsson í Fréttablaðið í dag og bendir meðal annars á að biskupar mega vera ungir og að nýr biskup þarf að hafa öflugt teymi í kringum sig, vera í góðum tengslum og hvetja til gagnrýninnar umræðu um kirkju og kristni. – Meira um biskupskjör og kirkju.
-
Lifrarþjónusta í líkama Krists
Sigríður Guðmarsdóttir í bloggar um kirkjuna sem líkama Krists og veltir fyrir sér hvaða lífffæri biskupinn sé í þessum líkama. Er hann kannski lifurin? – Meira um biskupskjör og kirkju.
-
Charlie og Charles og Inside Job
Eins og margir Íslendingar horfðum við á Inside Job þegar hún var sýnd á Rúv fyrir tæpri viku síðan. Þetta er mögnuð mynd sem vekur margar spurningar. Í myndbandinu hér að ofan má ræðir bandaríski þáttastjórnandinn Charlie Rose við Charles Ferguson sem er leikstjóri Inside Job.