Blogg
Færslur um hvaðeina sem okkur þykir áhugavert. Notaðu hnappana til að sía eða flettu gegnum allt.
-
Ekki jamm heldur YES
Það er gaman, vinalegt og syngjandi skemmtilegt í þjóðkirkjunni skrifar Pétur Björgvin sem er JÁ-maður en enginn jámaður.
-
Ekki deila þessu á Facebook
Mynd úr flugvél hefur farið eins og eldur í sinu um Facebook. Myndinni fylgir saga af konu sem vildi ekki sitja við hlið þeldökks manns í vélinni og bað flugþjón að færa sig. Hún sótti þetta nokkuð fast. Flugþjónninn brást við með því að færa manninn á fyrsta farrými og gaf þá ástæðu að hann ætti ekki að þurfa að sitja við hlið manneskju sem væri óþolandi og full af fordómum. Í lok myndatextans er hvatning: Deildu þessu á Facebook ef þú ert á móti rasisma.
Margir hafa deilt og mynd og sögu er raunar að finna í nokkrum útgáfum á flasbókinni. Í ummælum við eina þeirra stendur eitthvað á þessa leið:
Ekki deila þessari mynd og sögunni því hún er ósönn. Þetta gerðist aldrei hjá flugfélaginu TAM.
Skiptir það einhverju máli? Getur sagan ekki verið góð og jafnvel sönn þótt hún hafi ekki átt sér stað eins og greint er frá, í flugvél frá þessu tiltekna flugfélagi?
Lítum á hana sem dæmisögu um konuna sem fékk fordómana í hausinn og um flugþjóninn sem stóð með þolanda fordóma. Sem dæmisögu um makleg málagjöld hins fordómafulla.
Er ekki tilvalið að nota flasbókina til að deila slíkum sögum?
-
Húmar að kveldi
Vetrardagur verður vetrarnótt.
Svavar Knútur syngur og leikur.
Bakgarðurinn og birtan sjá okkur fyrir myndefni.
-
-
-
Biskupsefnið slegið
Enginn verður óbarinn biskup bloggar Sigurður Árni Þórðarson og deilir sögu af því þegar biskupsefnið var slegið (í góðu þó). – Meira um biskupskjör 2012.
-
Reykjavíkurmyndir
Myndavélinni var kippt með þegar ég rölti á leikskólann að sækja í dag. Það tók örlítið lengri tíma en venjulega, ekki vegna þess að færðin væri svona slæm heldur af því að það var myndefni á hverju strái.
Það eru fleiri myndir á flickr.
-
Lýðræði og lagafrumvarp
Hvernig samrýmist frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga því markmiði að efla lýðræði innan þjóðkirkjunnar? Sigríður Guðmarsdóttir bloggar. – Meira um biskupskjör 2012.
-