Árni:
Á þessu ári óska ég þér þess að þú knúsir alltof mikið, brosir alltof mikið og elskir þegar þú átt þess kost.
Prédikun í Bústaðakirkju, 4. janúar 2015.
Færslur um hvaðeina sem okkur þykir áhugavert. Notaðu hnappana til að sía eða flettu gegnum allt.
Árni:
Á þessu ári óska ég þér þess að þú knúsir alltof mikið, brosir alltof mikið og elskir þegar þú átt þess kost.
Prédikun í Bústaðakirkju, 4. janúar 2015.
Fyrir margt löngu (lesist: í júní 2004) skráði ég mig til leiks á ljósmyndavefnum flickr. Nokkrum sinnum hef ég fylgst með ljósmyndurum á flickr vinna 365 daga verkefni. Þau ganga út á að taka eina ljósmynd á dag og deila henni á vefnum. Þetta gefur skemmtilega innsýn í árið og er líka leið til að þroska sig sem ljósmyndara.
Í ár ætla ég að slást í hópinn og freista þess að taka 365 myndir. Fyrstu tvær hafa þegar birst. Við myndatökurnar ætla ég jöfnum höndum að nota snjallsímann og stóru myndavélina, allt eftir því hvað hentar hverju sinni.
Myndin hér að ofan var tekin á öðrum degi ársins og sýnir Narníu í Reykjavík.
Tónlistaruppgötvun ársins 2014 var Steinunn Harðardóttir sem gengur undir listamannsnafninu dj. flugvél og geimskip. Við sáum hana fyrst á jólagúmmelaði Prins Póló og félaga þar sem hún flutti nokkur dásamleg og dillandi góð lög. Í fyrsta þætti Júpíter á Alvarpinu ræðir Davíð Berndsen við Steinunni um tónlistina og lífið.
Kíkið á þetta.
[soundcloud url=”https://api.soundcloud.com/tracks/184128919″ params=”auto_play=false&hide_related=false&show_comments=true&show_user=true&show_reposts=false&visual=true” width=”100%” height=”450″ iframe=”true” /]
Jólastjarnan í glugganum boðar birtu og yl, rett eins og stjarnan í Betlehem forðum daga.
Árni:
Við getum sagt þetta:
Jesús er sjálfa – hann er selfie Guðs.
Af því að Jesús – sem er Guð – birtir líka Guð.
Það er vegna Jesú sem við þekkjum Guð og getum séð Guð.Hann er samt ekki snapp.
Sendur og birtist í stutta stund og hverfur svo
Hann er ekki instagrammmynd í lágskerpu.
Hann er ekki status á fésinu – þótt hann sé kallaður Orðið í Jóhannesarguðspjalli
Jólin fyrir byrjendur (og lengra komna), prédikun í hátíðarmessu á jóladegi í Laugarneskirkju, 25/12/2014.
Um allt land hafa prestar stigið upp í stól og lagt út af jólaguðspjallinu. Margar af þessum prédikunum hafa líka birst á vefnum. Hér eur nokkrar.
Aðfangadagur jóla
Jóladagur
Annar jóladagur
Viltu vera með samfélaginu okkar yfir jólin. Viltu styðja okkur í því að gera Ísland að kærleiksríku heimili fyrir alla sem þar eiga heima. Amen.
Á aðventukvöldinu í Laugarneskirkju voru fermingarbörnin í einu af aðalhlutverkunum. Þau gengu inn í kirkjuna með kertaljós, klædd í hvíta kyrtla, sungu. Nokkur þeirra stigu líka fram og báðu fyrir hönd safnaðarins. Þetta er ein af bænunum þeirra og við gerum hana að okkar bæn í dag.
Jóhanna æskulýðsfulltrúi í Langholtskirkju hitti krakka úr Langholtskirkju á dögunum. Hún skoraði á þau og það er ástæða til að taka undir þessa áskorun:
Þannig að nú ætla ég að koma með smá aðventu-áskorun. Hvað segið þið um að við sameinust öll um að gera eitt góðverk heima fyrir áður en við förum að sofa í kvöld? Það þarf ekki að vera risastórt eða taka langan tíma, það getur verið til dæmis að fara úr með ruslið, ganga frá eftir kvöldmatinn eða gefa gamla fólkinu óvænt gott faðmlag og koss á kinn.
Á þessari aðventu hefur verið mikið rætt um vettvangsferðir skólanna í landinu í kirkjurnar. Okkur langar að safna saman vísunum á efni sem hefur verið skrifað á einn stað, til að auðvelda yfirsýn og hjálpa okkur að skilja rökin sem eru notuð. Það mun því bætast við færsluna eftir því sem á líður.
Pistlar
Fréttir
Ps. Í vísun felst engin afstaða til efnis pistlanna, þetta er bara tilraun til að ná utan um umræðuna. Lesandinn athugi það.