Fjölmenningardagur er haldinn hátíðlegur í Reykjavík á morgun, laugardaginn 10. maí. Fjölmenningardagurinn er haldinn til að fagna fjölbreytileika í menningu og mannlífi sem borgin og borgarbúar njóta ríkulega.
Á morgun hefst dagskráin kl. 13.00 með skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju og niður Skólavörðustíg að Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar verður markaður með handverki og mat frá ólíkum löndum.
Við njótum fjölmenningarinnar á hverjum degi. Í morgun drukkum við ljósristað og ljúffengt kaffi frá Kólumbíu, við borðuðum indverskan mat í gærkvöldi og hjólum um á ensku og bandarísku hjólunum okkar.
Á tuttugusta gleðidegi fögnum við yfir fjölbreytileika menningar og mannlífs og þökkum fyrir öll þau sem hafa flust hingað frá öðrum löndum og auðga lífið hér á Íslandi.
Gleðidagarnir eru fimmtíu og standa frá páskum til hvítasunnu. Einu sinni á dag deilum einhverju uppbyggilegu og þakkarverðu með lesendum bloggsins okkar.