Það eru mikil gæði að fá að taka B-vítamínið sitt reglulega.
“B-vítamín eru lífsnauðsynleg og skortur á þeim getur haft slæmar afleiðingar fyrir líf og heilsu manna,” segir í frjálsa alfræðiritinu.
Biblían er B-vítamín sem okkur eru gefin til að íhuga, njóta og læra af – bráðnauðsynleg fyrir líkama, sál og anda. Biblían er risa-fyrirbæri í menningunni og við getum nálgast hana út frá ólíkum sjónarhólum bókmennta, vistfræði, sagnfræði, heimspeki, tungumála, þýðinga, siðfræði, áhrifasögu, kynjafræði eða stjórnmála, svo eitthvað sé nefnt. Þarna er af nógu að taka.
Fyrir mér er Biblían ekki síst gjöf sem okkur er gefin til að kynnast verkum Guðs í veröldinni. Biblían er þungamiðjan í kristinni trú og í lífi þeirra sem vilja láta orð Guðs móta og leiða.
Sem prestur er ég alltaf að vinna með Biblíuna. Og ég sé hvað hún er mikið vítamín í lífi fólks. Við notum Biblíuna á ólíkan og skapandi hátt. Hér eru nokkrar leiðir til að taka upp B-vítamínið besta.
Látum ekki B-vítamínskortinn hrjá okkur og ryðjum úr vegi því sem kemur í veg fyrir upptöku alls þess góða og skapandi sem þar er að finna.
- Við fylgjum lestrarröðum og kíkjum á einstök ritningarvers á hverjum degi. Hér er gott að nota t.d. Lykilorð, sem koma út á hverju ári, og lestraskrá Biblíufélagsins.
- Við nýtum okkur frábært aðgengi að mannakornum á heimasíðu Biblíufélagsins (biblian.is) og fáum daglega biblíulestur í tölvupósti.
- Við nýtum okkur leiðir eins og lectio divina, þar sem við lesum í bæn og íhugun.
- Við hittumst í bænahópum og leshópum – (líka á netinu!) – og íhugum sameiginlega.
- Við hvílum í biblíulestraröðinni sem helgihaldið okkar byggist á í messum þjóðkirkjunnar og fylgir kirkjuárinu.
Samhengi biblíutextanna
Snilldin við að hvíla í kirkjuárslestrunum er sú að þar fáum við ákeðið samhengi fyrir texta Biblíunnar. Stóra samhengið er auðvitað að hér komum við saman sem söfnuður, í kringum orð Guðs.
Annað samhengi er að í guðsþjónustunni stendur enginn texti einn – við fáum að heyra texta úr Gamla testamentinu, úr bréfum Nýja testamentisins og úr einu guðspjallanna. Þessir þrír textar mynda túlkunarramma og opna á splúnkunýjar víddir þegar við veltum fyrir okkur boðskap Biblíunnar hér og nú.
Það eru mikil gæði í því að taka B-vítamínið sitt reglulega. Það nærir og viðheldur.
Í frjálsa alfræðiritinu kemur þetta líka fram: „Ástæður fyrir því að upptaka B-vítamíns sé ekki fullnægjandi í líkamanum geta verið nokkrar.”
Við þekkjum alveg það sem stendur í vegi fyrir því að við tökum inn B-vítamínið besta. Það geta verið fordómar, sinnuleysi, streita – og bara leti (þekki þetta sjálf). En þegar við náum að stilla okkur inn á að þiggja það sem Biblían hefur upp á að bjóða opnast fjársjóður sem gerir okkur sterkari, rólegri, gagnrýnni á allt ruglið sem viðgengst í kringum okkur.
Látum ekki B-vítamínskortinn hrjá okkur og ryðjum úr vegi því sem kemur í veg fyrir upptöku alls þess góða og skapandi sem þar er að finna.
Kristín Þórunn Tómasdóttir er dómkirkjuprestur í Skálholti. Fyrst birt í B+, blaði Biblíufélagsins, 5. febrúar 2026.
