Í dag er þakkargjörðardagur í Bandaríkjunum. Í tilefni hans viljum við bera fram nokkur þakkarefni:
- Að vakna snemma – því við eigum börn og elskum þau.
- Húsið sem þarf að þrífa – því við eigum heimili.
- Óhreina þvottinn – því við eigum föt til að klæðast.
- Óhreinu diskana og glösin – því við höfum nóg af mat.
- Matarleifarnar undir eldhúsborðinu – því fjölskyldan okkar borðar saman.
- Innkaupin – því við höfum peninga til að kaupa mat.
- Klósettin sem þarf að þrífa – því við búum við gott hreinlæti.
- Hávaðann á heimilinu – því börnin okkar skemmta sér.
- Endalaust margar spurningar – því börnin okkar eru fróðleiksfús.
- Háttatíma þegar við erum lúin og þreytt – því við erum ennþá á lífi.
Fyrir hvað ert þú þakklát í dag?
Chelsea Lee Smith samdi þessa þakkarbæn og birti á blogginu sínu Moments A Day Við fundum þetta hjá netmunkunum í Unvirtous Abbey sem eru óþrjótandi uppspretta.