Fátt dregur fram gæði augnabliksins betur fram en matreiðsla úr góðu hráefni þegar enginn asi ríkir. Þetta á sannarlega við um eðalréttinn Boeuf Bourgignon sem Meryl Streep í hluverki Julia Child vakti svo rækilega athygli á fyrir nokkrum árum. Þennan rétt eldaði Kristín á mánudaginn og bar fram fyrir heimilisfólk auk ömmu og afa sem voru í heimsókn.
Uppskriftin sem hún fylgdi kemur úr dönsku matreiðslubókinni Middelhavets køkken. Hún er svona:
- 600 g nautakjöt
- 100 g beikon
- 25 g smjör
- 1 1/2 msk hveiti
- 2 msk tómatpúrré
- 1 flaska rauðvín
- 1/2 l kjötkraftur
- 6-8 kvistir timían
- 6 lárviðarlauf
- 6 perlulaukar
- 6 hvítlauksrif
- 600 g gulrætur
- 400 g sveppir
- salt og nýmalaur svartur pipar
Beikonið er steikt í stórum potti og svo lagt til hliðar. Kjötið skorið í litla teninga og steikt í smjöri, saltað og piprað. Hveiti drusað yfir, tómatpúrré bætt út í og hrært vel í. Bætið víni, kjötkrafti, kryddi og lauk út í og látið malla í 1 1/2 tíma. Svo er gulrótum og sveppum og beikoninu bætt út í og látið malla í hálftíma í viðbót. Ferskt timían notað til að skreyta þegar rétturinn er borinn fram, gjarnan með salati, hvítu brauði eða kartöflumús.
Bon appetit!
Gleðidagarnir eru fimmtíu og standa frá páskum til hvítasunnu. Einu sinni á dag deilum einhverju uppbyggilegu og þakkarverðu með lesendum bloggsins okkar.
Leave a Reply