Í dag er Dagur fjölmiðlafrelsisins. Í tilefni dagsins viljum við rifja upp reglurnar fimm sem Dan Gillmor setur fram í Mediactive. Þær eru hugsaðar fyrir okkur sem miðlum á vefnum:
- Þú skalt vinna heimavinnuna þína. Svo skaltu bæta um betur. – Do your homework, and then do some more.
- Negldu það. Alltaf. – Get it right, every time.
- Vertu sanngjarn við alla. – Be fair to everyone.
- Hugsaðu sjálfstætt, einkum um eigin fordóma. – Think independently, especially of your own biases.
- Vertu gagnsæ og gerðu kröfu um gagnsæi. – Practice and demand transparency.
Þetta eru góðar vinnureglur og ágætis útgangspunktur þegar við íhugum miðlun okkar bloggaranna á degi fjölmiðlafrelsisins.
Á tuttugasta og sjötta gleðidegi viljum við þakka fyrir góð vinnubrögð og gleðjast yfir tækninni sem gerir fleirum mögulegt að miðla og halda úti eigin fjölmiðlum.
Leave a Reply